

Iðnaðarstörf › Byggingarstörf
Birt í dag
Umsóknarfrestur: 17. september 2026 · 31 dagur eftir
Kappar ehf. er öflugt verktakafyrirtæki sem sérhæfir sig í viðhaldi og viðgerðum mannvirkja.
Hjá okkur starfa yfir 40 manns í almennu viðhaldi og viðgerðum á húsnæði og öðrum mannvirjum og erum við að leita að öflugum, reynslumiklum smiðum til að bæta í þann hóp.
Við leggjum áherslu á jákvæðan og góðan anda á vinnustaðnum og leggjum okkur fram við að vera fjölskylduvænn vinnustaður þar sem hæfileikar og kunnátta hvers og eins fá að njóta sín.
Við fögnum umsóknum frá einstaklingum á öllum aldri og öllum kynjum.
Við leitum að reyndum smiðum til að vinna við viðhald og viðgerðir mannvirkja.
