

Viðgerðir og viðhald fasteigna
Kappar ehf. er framsækið fyrirtæki í viðhaldi og viðgerðum mannvirkja og býr yfir fullkomnu og vel tæknivæddu verkstæði til allrar sérsmíði og annarra verka.
Hjá Köppum starfa yfir 40 manns og leggjum við mikið upp úr góðum starfsanda og fjölskylduvænu starfsumhverfi.
Fyrirtækið var stofnað 2009 og í dag starfa allar gerðir iðnaðarmanna með Köppum: rafvirkjar, píparar, málarar, smiðir, múrarar, dúkarar og blikkarar svo eitthvað sé nefnt.