
Um vinnustaðinn
Glansportið er handþvottastöð sem leggur áherslu á vönduð vinnubrögð, framúrskarandi þjónustu og fyrsta flokks umhirðu ökutækja. Við bjóðum upp á fjölbreytta þjónustu, allt frá hefðbundnum utanþrifum og alþrifum til bónmeðferða, djúphreinsunar, mössunar (paint correction) og annarrar sérhæfðrar bílaumhirðu. Starfið hjá Glansportinu felst í að sækja og skila bílum, taka á móti viðskiptavinum og sjá til þess að hvert ökutæki fái þá umhirðu sem það á skilið. Unnið er af nákvæmni og metnaði þar sem gæði og ánægja viðskiptavina eru í fyrirrúmi. Hjá okkur er alltaf eitthvað nýtt að læra. Starfsfólk fær tækifæri til að þróa færni sína í fjölbreyttum verkefnum, allt frá daglegum þrifum yfir í sérhæfðar meðferðir og faglega frágangsvinnu. Við leggjum mikla áherslu á góða samvinnu, jákvætt vinnuumhverfi og að skila hverjum bíl í sem bestu ástandi.
